Rusl
mars 29th, 2009
Samkvæmt upplýsingum sem ég fann á netinu þá hendir hver manneskja um það bil 2 kg af sorpi á dag - það er 730 kg á ári!! Þetta rusl endar að miklu leyti í landfyllingum. Einfaldasta leiðin til að minnka þetta er að hætta að kaupa hluti sem við þurfum ekkert á að halda. Það er kannski ágætur tími núna til að hugsa út í þetta því flest þurfum við aðeins að minnka útgjöld og best að byrja á því að hætta að kaupa allan óþarfa. Hver hefur ekki farið í verslun og keypt eitthvað sniðugt sem var síðan aldrei notað eða keypt eitthvað bara útaf því að það var svo rosalega ódýrt. En síðan endaði það í ruslinu stuttu seinna - eða löngu seinna með viðkomu í geymslunni. Það er svo mikil sóun á peningum og tíma. Maður eyðir pening sem maður hefði svo vel getað notað í eitthvað skynsamlegra og svo eyðir maður tíma í að bera þetta heim, finna stað fyrir þetta í geymslunni og svo bera þetta aftur út í ruslatunnu.
Annað rusl sem er auðveldlega hægt að minnka er fjölpóstur. Daglega streymir inn um lúguna bæklingar og auglýsingar sem margir setja beint í ruslið án þess að skoða. Það er hægt að afpanta fjölpóst hjá Póstinum. En það eru eflaust margir sem vilja fá upplýsingar um tilboð og afslætti og þess vegna er kjörið fyrir þá að safna þessum pappír saman og setja í grænu eða bláu tunnuna eða í grenndargáma Sorpu en upplýsingar um staðingu þeirra er að finna hér. Pappír er um 27% af rusli heimilanna og þennan pappír er hægt að endurnýta ef við flokkum og skilum í réttar tunnur eða gáma.